Pallborð – Hefðartátur og ungtátur

9:27 pm News

Þann 15. janúar, klukkan 18:00 verður næsti atburður á vegum Tæknitáta sem ber nafnið Hefðartátur og ungtátur.  Atburðurinn verður haldin á Sólon, á horni Ingólfsstrætis og Bankastrætis.

Þá verða fjörugar pallborðsumræður um stöðu tæknitátunnar og fengnar verða þær sem ruddu veginn og þær sem eru að taka fyrstu skrefin til að spjalla um umræðuefnið.

Á pallborðinu sitja
Anna Ingólfsdóttir, prófessor í tölvunarfræði HR
Berglind Ósk Bergsdóttir, tölvunarfræðinemi HÍ og í stjórn félags tölvunarfræðinema
Hólmfríður Pálsdóttir, Field Support Manager Vigor
Sigurbirna Hafliðadóttir, Tölvunarfræðingur hjá Landsbanka Íslands

Stjórnandi pallborðs verður Brynhildur Ólafsdóttir

Þátttökugjald er 1000 kr.

Fundurinn verður byggður á þeim ramma sem fyrirmynd hópsins, Girl Geek Dinners, hefur haft fyrir sína viðurði, þ.e. þátttakendur mæta á staðinn fá sér létta máltíð og boðið er upp á stutta dagskrá ásamt “mingli” í lokin.

Á Sólon verður hægt að panta mat af svokölluðum express menu – þar sem hver getur valið fyrir sig.
Sólon express menu samanstendur af 15 vinsælustu réttum Sólon af aðalmatseðli.

Tæknidátar velkominir í boði tæknitátu.

Sjáumst hressar!

Comments are closed.