Næsti tæknitátufundur

8:46 pm News

Okkur langar til að biðja ykkur um að merkja strax við í dagatalinu að þið ætlið að koma á Arctic Girl Geek Dinner þann 11. desember klukkan 18.

Að þessu sinni verður umræðuefnið björgunartátur og hvernig tæknin er nýtt í björgunarstarfi.

Við erum að vinna í því að ganga frá fyrirlesurum og húsnæði og þið fáið fundarboð með nánari upplýsingum þegar nær dregur.

Nú, fyrst þið eruð með pennann á lofti við dagatalið þá skulið þið líka merkja við 15. janúar en þá verður janúarfundurinn.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Comments are closed.